Norðurorka
		<description>Norðurorka</description>
		<language>is</language>
Norðurorka hf. selur Landsvirkjun hlut sinn í  Þeistareykjum ehf.
    <description>Í dag 30. desember var gengið frá samningi um kaup Landsvirkjunar á hlut Norðurorku hf. í Þeistareykjum ehf.  Um er að ræða 32% hlut Norðurorku í hlutafélaginu en eftir kaupin á Landsvirkjun 64% hlut í félaginu en aðrir hluthafar eru Orkuveita Húsavíkur og Þingeyjarsveit.Fyrir hlutinn eru greiddar 4,5 milljónir dollara að aflokinni áreiðanleikakönnun og 11 milljónir dollara til viðbótar þegar orkuvinnsla hefst á umráðasvæði Þeistareykja ehf., þó ekki fyrr en að tíu árum liðnum.Þeistareykir ehf. hafa frá árinu 2001 staðið að rannsóknum á möguleikum jarðhitasvæðisins að Þeistareykjum til jarðhitanýtingar. Hefur félagið fjárfest verulega í því skyni. Boraðar hafa verið 6 djúpar rannsóknarholur frá þremur borteigum á austanverðu svæðinu með góðum árangri, en samtals afkasta holurnar gufu sem jafngildir um 45 MW raforkuframleiðslu. Vísbendingar eru um að þar sé veruleg framleiðslugeta til viðbótar enda er jarðhitasvæðið á Þeistareykjum talið vera eitt af stærri jarðhitakerfum Íslands.Háhitasvæðin á Norðausturlandi gegna lykilhlutverki í frekari uppbyggingu raforkuvinnslu á Íslandi. Norðurorka hefur með þátttöku sinni í Þeistareykjum ehf. gegnt mikilvægu hlutverki við undirbúning orkuvinnslu á svæðinu. Þessi kaup gera Landsvirkjun enn betur í stakk búna að vinna að frekari uppbyggingu á þessu svæði í tengslum við aðra orkukosti fyrirtækisins. Á myndinni eru sitjandi frá vinstri þeir Franz Árnason forstjóri Norðurorku og Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar. Að baki þeim eru frá vinstri Stefán Stefánsson og Jón Óttar Birgisson, hjá Saga Capital, Baldur Dýrfjörð, frá Norðurorku, Einar Kristjánsson, Jón Sveinsson og Stefán Pétursson hjá Landsvirkjun. </description>
Skrifað undir samning við Sjóvá um vátryggingarvernd
    <description>Í dag var undirritaður samningur á milli Sjóvá og Norðurorku um að Sjóvá annist alla vátryggingavernd fyrir Norðurorku næstu fjögur árin.  Í samningnum er kveðið á um aukið samstarf við Sjóvá Forvarnahúsið um úttektir, áhættumat og framkvæmd sértækra forvarnaverkefna ásamt ráðgjöf, fræðslu og uppsetningu öryggisferla. Ennfremur er í samningnum ákvæði um ágóðahlutdeild vátryggingataka ár hvert verði tjónareynsla undir skilgreindu hámarki af iðgjöldum. Þess má geta að samskonar ákvæði var í samningi aðila undangengin ár. Ofangreindur samningur er gerður í kjölfar útboðs sem fram fór í júní sl. með þátttöku allra tryggingafélaganna. Tilboð Sjóvár reyndist hagstæðast. Sjóvá hefur annast vátryggingavernd fyrir Norðurorku síðastliðin 9 ár. úr fréttatilkynningu</description>
Aðalfundur Norðurorku hf . haldinn 28. mars 2008 samþykkti eftirfarandi ályktun
100 ára afmæli hitaveitu.
Rekstrarleyfi smávirkjana.
    <description>Í tilefni af fréttaflutningi um rekstrarleyfi smávirkjana.</description>