Noršurorka

Norðurorka

Flżtilyklar

Breytingar į veršskrį

Ný gjaldskrá dreifikerfis rafveitu 1. janúar 2010 (sjá RAFVEITA hér til vinstri)

Gjaldskrá dreifikerfis rafveitu var hækkuð þann 1. janúar 2010

Fréttatilkynning vegna verðbreytinga hjá hitaveitum Norðurorku 1. janúar 2010 

Á stjórnarfundi í Norðurorku hf. þann 3. júní 2005 var samþykkt að fastagjald og tengigjöld hitaveitu breyttust framvegis til samræmis við breytingar á byggingavísitölu.  Á stjórnarfundi þann 28. nóvember 2008 var samþykkt í ljósri sérstakra aðstæðna í samfélaginu að víkja frá þessari ákvörðun að því er varðar fastagjaldið og miða þess í stað við breytingu á vísitölu neysluverðs.  Þetta fól í sér verulega minni hækkun en ef miðað hefði verið áfram við byggingavísitöluna.  Á stjórnarfundi þann 13. nóvember s.l. var síðan ákveðið að hækka fastagjaldið ekki að þessu sinni með sömu tilvísun.  Óhjákvæmilegt er hins vegar að hækka tengigjöldin í samræmi við breytingar á byggingavísitölunni milli ára og mun þau því hækka  um 4,6%.

Þá var á stjórnarfundinum samþykkt að halda hækkun á rúmmetraverði í lágmarki.  Ákveðið var að hækka rúmmetra gjaldið um aðeins  tvær krónur rúmmetra sem er rétt um 2,15% hjá öllum veitum nema hjá Reykjaveitu.  Þar verður hækkunin 9,71%, þ.e. hækkun á vísitölu neysluverð sem byggir á samningi um uppbyggingu Reykjaveitu og þær fjárhagslegu forsendur sem lágu henni til grundvallar.

Til upplýsinga er rétt að hafa eftirfarandi í huga.  Á undanförnum árum hefur raunverð á heitu vatni lækkað hjá lang stærstum hluta viðskiptamanna, þ.e á Akureyri, en aðrar veitur hafa verið að renna inn í Norðurorku á umliðnum árum eða nýlega til þeirra stofnað, sbr. Reykjaveitu.  Þannig var verðið á Akureyri rétt rúmar 108 krónur rúmmetrinn 2001 en lækkaði í rúmar 100 krónur rúmmetrinn 1. janúar árið 2002 lækkaði síðan 1. júlí 2005 í tæpar 97 krónur fór síðan í tæpar 94 krónur 1. janúar 2006 og í rúmar 91 krónur 1. febrúar 2007.  Verðið lækkaði því á þessum árum bæði í krónutölu auk raunlækkunar að teknu tilliti til vísitöluhækkanna. 

Með hliðsjón af framanrituð er ljóst að núverandi hækkanir eru mjög hófstiltar þar sem engin hækkun er á fastagjaldi og hækkun rúmmetraverðs hjá langaflestum notendum óveruleg (Akureyri, Ólafsfjörður, Eyjafjarðarsveit, Svalbarðsströnd, Hrísey) en nokkur hjá viðskiptavinum Reykjaveitu.

Ný verðskrá birtist undir tenglum hér til hliðar 1. janúar 2010.

 

 

 

Innskrįning

moya - Útgáfa 1.10 RC1 2006 - Stefna ehf